Það er bara allt að verða vitlaust yfir ferðinni okkar á Horn.. Líkt og aðrir, tóku
Ofurkonur alveg rífandi vel í hugmyndina á æfingu áðan og ætla ekki að láta sitt eftir liggja í ferðinni. Á staðnum var meira að segja nánast plönuð flugferð ÍFJ-HHA (Höfn í Hornvík Airport)! Það verða sem sagt líklega 3 ferðir til að flytja hópinn frá Ísafirði:
1)
Fim 27/7, kl.9, bátsferð í Veiðileysu.
2)
Fim 27/7, kl.22 (líklegasta tímasetningin), bátsferð í Veiðileysu.
3)
Fös 28/7, ?kl.18, flugferð í Hornvík.
Öruggt far er fyrir alla heim á sunnudeginum, bátsleiðina, hvort sem þeir vilja fara í bátinn í Hornvík eða labba yfir í Lónafjörð og taka bátinn þar.
Jóna Ben var svo góð að taka slatta af búsi fyrir okkur í Hornvíkina í gær.. ;)
En fyrir þá sem ekki vita þá verða sameiginlegar máltíðir á fös- og laukvöldinu, fyrir það þarf að leggja 1.000 kr inn á reikninginn minn, númerið er: 0311-26-090782-0907824449. Við Helga Sigríður ætlum að hittast heima hjá henni á morgun kl 4 og ákveða matinn og fara svo og kaupa, þeir sem vilja leggja okkur lið og/eða koma með gómsætar hugmyndir endilega mætið eða hafið samband við okkur (síminn minn er 867 9921 og Helgu 844 6251)... eða bara kommenta hér á síðuna!
Fyrir þá sem ætla að leggja af stað að kvöldi fimmtudagsins vil ég minna á að fara ofarlega yfir ána í Hornvík (þar sem á víst að fara yfir hana..) en ekki niðri við ós því að það er
háflóð um kl 03 og þá er ósinn "mannhæðardjúpur".. Fyrri hópurinn getur hins vegar farið yfir ósinn því það verður
háfjara um kl 15..
Þetta hef ég eftir veðurspegúlöntum í Æðey! :)
Svo er auðvitað skylda að koma með
óvæntan glaðning.. minn er kominn í bakpokann! Ég verð nú samt að segja að óvæntasta óvænta glaðninginn á Jens ennþá, páskaeggin hans á Horni 2004 vöktu eindæma lukku.. hehe :)
Minni á að það er pláss fyrir fullt af skemmtilegu fólki í viðbót.. og auðvitað skemmir það ekki fyrir að það sé
karlkyns , hehe sérstaklega þar sem konur virðast vera í miklum meirihluta..!!
Knúspoki
Sandra Dís